Beint í efni

Skrifstofa FHSS

FHSS rekur sameiginlega þjónustuskrifstofu með fimm öðrum stéttarfélögum undir heitinu Þjónustuskrifstofa FHS. Skrifstofan er til húsa að Borgartúni 6 og er opin alla virka daga frá klukkan 9-12 og 13-16. Síminn er 595 5165.

FHSS rekur sameiginlega þjónustuskrifstofu með fimm öðrum stéttarfélögum undir heitinu Þjónustuskrifstofa FHS. Skrifstofan er til húsa að Borgartúni 6 og er opin alla virka daga frá klukkan 9-12 og 13-16. Síminn er 595 5165.

Anna S. Ragnarsdóttir
Skrifstofustjóri

Anna er skrifstofustjóri og hefur sinnt því frá árinu 2003. Hún hefur því langa reynslu af rekstri og þjónustu við félagsmenn. Anna ber ábyrgð á bókhaldi, aðföngum og skrifstofu félagsins.

Gauti Skúlason
Verkefnastjóri samskipta og þjónustu

Gauti er verkefnastjóri samskipta og þjónustu hjá skrifstofunni og hefur lokið námi í heimspeki, hagfræði og stjórnmálafræði. Hann starfaði áður sem þjónustufulltrúi hjá BHM og sinnir alhliða þjónustu auk þess að bera ábyrgð á fyrirkomulagi samskipta við félagsfólk.

Georg Brynjarsson
Framkvæmdastjóri

Georg er framkvæmdastjóri og hagfræðingur að mennt. Hann hefur unnið fjölbreytt störf á sviði vinnumarkaðsmála og starfaði áður sem hagfræðingur BHM. Hann ber ábyrgð á rekstri þjónustuskrifstofunnar.

Halldór K. Valdimarsson
Fjármálastjóri

Halldór er í hlutastarfi sem fjármálastjóri skrifstofunnar en hann starfaði áður sem framkvæmdastjóri hennar frá árinu 2008. Hann hefur því langa reynslu þegar kemur að rekstri stéttarfélaga og víðtæka aðra reynslu af vinnumarkaði. Halldór ber ábyrgð á fjármálum skrifstofunnar, aðildarfélaga hennar og sjóða.

Hjalti Einarsson
Verkefnastjóri kjaramála

Hjalti er verkefnastjóri kjaramála. Hann hefur meistaragráðu í félags- og vinnusálfræði og er nú einnig í meistaranámi í nýsköpun og viðskiptaþróun. Hann hefur síðustu 14 árin unnið við rannsóknir og greiningu gagna og stjórnun verkefna á sviði kjara- starfsemis- og mannauðsmála. Hjalti hefur umsjón með kjaraviðræðum og eftirfylgni kjarasamninga.

Júlíana Guðmundsdóttir
Lögfræðingur, hdl.

Júlíana er lögfræðingur að mennt og hefur héraðsdómslögmannsréttindi. Hún hefur víðtæka reynslu úr atvinnulífinu og sinnir alhliða verkefnum fyrir félagsfólk, ekki síst lagatengdum úrræðum.