Beint í efni

Vegna uppsagna í Stjórnarráðinu

Erindi til ráðuneytisstjóra og forstöðumanna í Stjórnsýslunni

Vegna þeirra uppsagna sem komið hafa til innan ráðuneytanna og Stjórnarráðsins að undanförnu hafa Stjórn og Trúnaðarmenn FHSS í sameiningu sent eftirfarandi orðsendingu til Ráðuneytisstjóra og forstöðumanna í Stjórnarráðinu.

Vegna uppsagna í Stjórnarráðinu

Í ljósi þeirra aðhaldsaðgerða sem stjórnvöld grípa nú til, sem hafa haft í för með sér uppsagnir í Stjórnarráðinu, telja stjórn og trúnaðarmenn Félags háskólamenntaðra starfsmanna Stjórnarráðsins (FHSS) rétt að árétta að ákvarðanir vegna þeirra þurfi að vera vel ígrundaðar og eftir fremsta megni tryggt að starfshæfi stjórnsýslunnar og gæði hennar rýrist ekki. Uppsagnir eru ekki án fórnar og sársauka fyrir starfsemi ráðuneyta, undirstofnana þeirra og starfsfólks.

Varast ætti að láta í það skína að það ástand, sem einkennist af uppsögnum og niðurlagningu starfa, teljist gott fordæmi sem hafi ekki áhrif á starfsemi Stjórnarráðsins. Við aðhaldsaðgerðir eykst álag á starfsmenn sem þegar er langt úr hófi fram líkt og kannanir undanfarin ár hafa staðfest. Álag og verkefnastaða er þegar með þeim hætti að fækkun stöðugilda leiðir óumflýjanlega til þjónustuskerðingar.

Innan Stjórnarráðsins starfar hæft starfsfólk sem býr yfir áratugaþekkingu sem tryggir skilyrði farsællar stjórnsýslu. Í veröld sem aldrei hefur verið flóknari með ógnarhröðum samfélags- og tæknibreytingum verður of fáliðuð stjórnsýsla í vanda við að tryggja öryggi og gæði þeirra verkefna sem hún þarf að leysa af hendi.

Niðurlagning starfa felur í sér takmörkun á getu stjórnsýslunnar til að sinna hlutverki sínu. Uppsagnir og niðurlagning starfa eru fyrst og fremst aðgerðir sem skilja þarf sem sársaukafulla þrautalendingu fremur en markmið í sjálfu sér.

FHSS skorar á stjórnvöld að tryggja að ekki sé farið í frekari uppsagnir án þess að mat sé lagt á þau áhrif sem þær hafa á getu stjórnsýslunnar til að sinna sínum grunnverkefnum og því sé um leið svarað hvaða verkefni verða fyrir áhrifum. Ekki verður bæði sleppt og haldið.

Stjórn og trúnaðarmenn Félags háskólamenntaðra starfsmanna Stjórnarráðsins