Námskeið hjá Endurmenntun Háskóla Íslands
Í samstarfi við Starfsþróunarsetur BHM
Starfsþróunarsetur BHM og Endurmenntun HÍ hafa gert samning þar sem félagsfólki aðildafélaga Starfsþróunarseturs býðst að sækja eftirfarandi námskeið hjá Endurmenntun HÍ þeim að kostnaðarlausu. Námskeiðin sem um er að ræða eru sérstaklega valin þannig að sem flest geti nýtt sér þau til að efla sig í starfi. Þátttaka á þessum námskeiðum kemur ekki til frádráttar á styrkupphæð einstaklinga.
Upplýsingar um afsláttarkóða sem nota skal við skráningu sækir þú inn á „Mínar síður“ á vef BHM.
Afsláttarkóðinn gildir aðeins á þau námskeið sem birt eru hér fyrir neðan. Öðrum en félagsfólki aðildafélaga Starfsþróunarseturs BHM er með öllu óheimilt að nota afsláttarkóðann. Ef afsláttarkóðinn er notaður af einstaklingi sem ekki hefur aðild að Starfsþróunarsetrinu verður námskeiðsgjald innheimt með greiðsluseðli á viðkomandi einstakling.
Ert þú ekki viss um aðild þína?
Hér eru upplýsingar um aðild einstaklinga hjá Starfsþróunarsetrinu.