Beint í efni

Næstu viðburðir á fræðsludagskrá BHM

Eftirfarandi fyrir eru fyrirlestrar framundan á fræðsludagskrá BHM en þeir eru opnir öllum félögum aðildarfélaga BHM þeim að kostnaðarlausu.

Okið undan sjálfum mér

Miðvikudagur, 10. maí 2023 Kl. 12:00 - 12:45 / Borgartúni 6, 4. hæð og í streymi á Teams.

Fyrirlesari er Björgvin Franz Gíslason.

Okið undan sjálfum mér er hreinskilinn fyrirlestur þar sem leikarinn Björgvin Franz lýsir því hvernig hann náði að breyta eigin vinnubrjálæði yfir í innri ró og raunverulega starfsánægju. Hann veltir því upp hvernig maður nær þeim árangri að verða betri starfskraftur með því að eyða færri klukkustundum í vinnunni en meiri tíma með fjölskyldu og vinum. Aðferðirnar sem Björgvin styðst við hafa verið notaðar til að þjálfa afreksíþróttafólk og forstjóra stærstu fyrirtækja heims til að öðlast betri árangri í sínu fagi sem og í lífinu.

Björgvin Franz útskrifaðist með MLS gráðu (Master of Liberal Studies) frá University of Minnesota 2015. Hann kennir meðal annars í Stjórnendanámi Stjórnendafræðslunnar við Háskólann á Akureyri og hefur gert síðan 2019 ásamt Eddu Björgvinsdóttur.

Félagsfólk er velkomið í sal BHM í Borgartúni 6, 4. hæð. Fyrirlestrinum verður einnig streymt á Teams en athugið að hann verður ekki tekinn upp.

Að semja um laun á árangursríkan hátt

Miðvikudagur, 17. maí 2023 Kl. 13:00 - 14:00 / Borgartúni 6, 4. hæð og á Teams.

Fyrirlesari Elmar Hallgríms Hallgrímsson, lögfræðingur.

Í fyrirlestrinum verður farið yfir

  • lykilþætti árangursríkrar samningatækni
  • hvernig við högum undirbúningi fyrir krefjandi samningaviðræður, s.s. um kjör
  • hvernig við getum samið um hærri laun

Elmar Hallgríms Hallgrímsson er lögfræðingur sem hefur kennt samningatækni um árabil, m.a. við Háskóla Íslands. Elmar lauk framhaldsnámi í lögfræði við University of Pennsylvania þar sem hann lærði m.a. samningatækni.