Beint í efni

Launahækkun 1. apríl 2026

Launahækkanir 1. apríl 2026

Þann 1. apríl munu laun félaga FHSS hækka samkvæmt kjarasamningum.

Við bendum félagsfólki á að fara vel yfir launaseðla sína og tryggja að launahækkanir hafi skilað sér. Ef meinbugir eru þar á er mikilvægt að gera atvinnurekanda þegar viðvart og fara fram á tafarlausa leiðréttingu. Starfsfólk Þjónustuskrifstofunnar Stétt er boðið og búið til að aðstoða félaga ef þörf krefur í þessum efnum.

Starfsfólk hjá ríkinu:

Föst mánaðarlaun fyrir dagvinnu skulu hækka um 3,5%, en þó aldrei minna en um 23.750 krónur, nema að annað leiði af launatöflum sem fylgja kjarasamningi.

Kjaratengdir liðir kjarasamningsins hækka um 3,5%, nema að um annað hafi verið samið.

Sjá launatöflu starfsfólks ríkisins