Beint í efni

Konur vinna ókeypis eftir kl. 15:15 á Íslandi!

Samkvæmt nýjustu tölum Hagstofu Íslands um launamun kynjanna eru konur með 21,9% lægri atvinnutekjur en karlar að meðaltali. Samkvæmt því hafa konur unnið fyrir launum sínum eftir 6 klukkustundir og 15 mínútur miðað við fullan vinnudag frá kl. 9–17.

Daglegum vinnuskyldum kvenna er því lokið kl. 15:15.

Nú er tími til að leiðrétta skakkt verðmætamat!

Upprætum kerfisbundið vanmat á störfum kvenna

Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir formaður jafnréttisnefndar BHM og Friðrik Jónsson formaður BHM rituðu grein saman á Vísi.is í tilefni kvennafrídagsins.