Beint í efni

FHSS eflist með samstarfi þriggja stéttarfélaga!

Ný þjónustuskrifstofa lítur dagsins ljós

Félag háskólamenntaðra starfsmanna stjórnarráðsins (FHSS) hefur til fjölda ára rekið þjónustuskrifstofu með fjórum öðrum stéttarfélögum. Þjónustuskrifstofan sér um daglegan rekstur og þjónustu við félagsfólk. Undir lok októbermánaðar fóru þrjú af þeim fimm félögum sem rekið hafa skrifstofuna sameiginlega fram á slit hennar. Þessi félög hafa nú kosið að sameinast undir merkjum nýs félags - Visku. FHSS virðir ákvörðun þessara stéttarfélaga og óskar nýja félaginu velfarnaðar.

Við þessar aðstæður þurfti FHSS að tryggja áframhaldandi rekstur félagsins og þjónustu gagnvart félagsfólki FHSS. FHSS og Stéttarfélag lögfræðinga (SL) ásamt Kjarafélagi viðskiptafræðinga og hagfræðinga (KVH) hafa nú sameinast um sameiginlegan rekstur nýrrar þjónustuskrifstofu fyrir félagsfólk. Löng hefð og reynsla er kominn á rekstur sameiginlegrar þjónustuskrifstofu og er rekstraformið talið einkar heppilegt fyrir öflug félög sem vilja eða þurfa að halda í sína sérstöðu.

Þetta er mikið fagnaðarefni og ljóst að með þessu verður til sterkt samstarf þriggja öflugra stéttarfélaga háskólafólks með um 4000 félaga, þar af um 2000 störf hjá ríkinu einu eða um 10% allra ríkisstarfa. Er ráðhagur þessi einkar heppilegur í ljósi sameiginlegra hagsmuna þessara þriggja félaga. Með rekstri þjónustuskrifstofunnar er sjálfstæði og sérstaða FHSS enn fremur tryggð.

Formenn FHSS, SL og KVH frá undirritun samkomulags félaganna þriggja um rekstur á sameiginlegri þjónustuskrifstofu. F.v. Steinar Örn Steinarsson formaður FHSS, Jóhann Gunnar Þórarinsson formaður SL og Stefán Þór Björnsson formaður KVH.

Samstarf um áframhaldandi rekstur þjónustuskrifstofu er nú í höfn og ætla má að félagar FHSS verði ekki fyrir nokkrum óþægindum vegna þessa. Áhersla verður áfram á framúrskarandi þjónustu og öfluga hagsmunagæslu fyrir félagsfólk en nú með aukinni áherslu á kjör starfsfólks hjá ríkinu. Með einsleitari og einfaldari samsetningu félaga næst jafnframt fram hagræði í rekstri sem nýta má til að þróa og bæta þjónustu félagsins enn frekar. FHSS sér fjölmörg tækifæri í nýrri þjónustuskrifstofu og mun kappkosta að þróa hana til samræmis við áskoranir í rekstri nútímalegra stéttarfélaga.

FHSS vill einnig vekja athygli á því að nú líður að kjarasamningum. Í aðdraganda þeirra mun FHSS senda kjarakönnun til félagsfólks og boða til félagsfunda í byrjun nýs árs til að ræða um kjaramál og draga fram áherslur félagsfólks sem mun nýtast við mótun kröfugerðar. Þá gefst félögum einnig kostur á að ræða breytingarnar hjá félaginu og þær áskoranir og tækifæri sem eru framundan í rekstri stéttarfélaga á opinberum vinnumarkaði.