FHSS - Öflug þjónusta við félagsfólk
Kæri félagi
Öflug hagsmunagæsla og rík þjónusta
Stjórn FHSS leggur áherslu á öfluga hagsmunagæslu, góða þjónustu og gagnkvæmt samstarf við félagsfólk. Undangengið samningsár og kjaraleg staða FHSS sýnir að félagið státar af árangri sem fáir aðrir geta leikið eftir. Helgast það einkum af sterkri og öflugri liðsheild hópsins. FHSS mun eftir sem áður gegna lykilhlutverki í að þjóna félagsfólki af metnaði, bæta kjör þess og verja hagsmuni.
Eitt af lykilmarkmiðum FHSS er að tryggja félögum sínum framúrskarandi þjónustu á sama tíma og áhersla er lögð lág félagsgjöld. Lág félagsgjöld FHSS samanborið við félagsgjöld annarra félaga tryggir félagsfólki okkar auknar ráðstöfunartekjur um tugi þúsunda á ársgrundvelli.
Hafðu áhrif á starf félagsins og taktu þátt í þjónustukönnun FHSS
FHSS leggur enn fremur ríka áherslu á að veita félögum sínum bestu þjónustu sem völ er á hverju sinni. Með það að marki að svara ávallt kalli félagsfólks viljum við því leita eftir þátttöku þinni í þjónustukönnun félagsins. Meðfylgjandi er hlekkur á þjónustukönnunina og viljum við eindregið hvetja félaga til að svara henni.
Þjónustukönnun FHSS: https://forms.office.com/e/2VLRGNQMpc
Lífeyrisráðgjöf - Þjónustusamningur við Björn Berg
Sífellt eru í þróun nýjar leiðir til þess að bæta þjónustu við félagsfólk. Í upphafi árs gekk félagið frá þjónustusamningi við Björn Berg um á lífeyrisráðgjöf fyrir félagsfólk. Er um einstaka þjónustu að ræða og stendur hún einungis félögum í FHSS og SL til boða. Felur hún í sér fræðslu og persónulega lífeyrisráðgjöf sem mælst hefur einkar vel fyrir. Sjá nánar hér:Persónuleg lífeyrisráðgjöf
Lagabreytingar
Miklar breytingar hafa átt sér stað á félagatali FHSS sem hefur vaxið gríðarlega og tvöfaldast að stærð á undanförnum árum. Mikill áhugi er á félaginu og hefur félögum sem skipt hafa um starfsvettvang þótt miður að þurfa að segja sig úr því af þeim sökum. Stjórn FHSS er því sönn ánægja að tilkynna félögum FHSS um lagabreytingar sem heimilar þeim sem halda til annarra starfa að halda aðild sinni að félaginu.
Flutningar í Borgartún 27
FHSS færði nýlega starfsstöð sína í Borgartún 27 en eldri húsakynni félagsins, Rúgbrauðsgerðin/Borgartún 6 leitar nú nýrra eiganda
Önnur erindi
Enn sem fyrr minnum við félaga á að beina fyrirspurnum og erindum beint til félagsins í síma 415 -1560 eða með tölvupósti á fhss@fhss.is.
FHSS er öflugt félag sem náð hefur miklum árangri í baráttu sinni með hagsmuni félagsfólks að leiðarljósi. Þetta væri ekki hægt nema með samstöðu þess öfluga hóps sem stendur að félaginu. Stöndum þétt saman. Setjum S við samstöðu og styrkjum hvert annað á grunni öflugs stéttarfélags. Sameinuð stöndum við, sundruð föllum við.
Virðingarfyllst
Stjórn FHSS