Ávarp frá nýjum formanni
Kæru félagar.
FHSS hefur frá stofnun félagsins árið 1972 lagt áherslu á að berjast fyrir hag félagsfólks svo sem bættum kjörum, réttindum og vinnuaðstæðum. FHSS er lokað hagsmunafélag í eigu þeirra sem hafa háskólamenntun og starfa í efstu lögum íslenskrar stjórnsýslu, einkum hjá Stjórnarráðinu en einnig í undirstofnunum ráðuneyta og annarra þeirra sem taka stjórnvaldsákvarðanir.
Hérna má lesa ágrip af sögu félagsins.
Í samræmi við lög um kjarasamninga opinberra starfsmanna fer FHSS með samningsumboð fyrir háskólamenntað starfsfólk Stjórnarráðsins, aðstoðar félagsfólk við túlkun kjara- og stofnanasamninga, sinnir málafylgju um réttindamál félagsfólks og ver félagsfólk sem er órétti beitt. FHSS hefur einsett sér að gæta sértækra hagsmuna félaga sinna ásamt því að leggja áherslu á lág félagsgjöld. FHSS er á meðal þeirra félaga innan BHM sem taka hvað lægstu félagsgjöldin. Hleypur sá ávinningur félaga á tugum þúsunda á ári.
Sérstaða FHSS er mikil þar sem störf innan Stjórnarráðsins, og tengdum stjórnsýslustofnunum, eru um margt ólík öðrum störfum. Starfsfólk er í miklu návígi við stjórnmálamenn í æðstu valdastöðum og þarf að taka stjórnvaldsákvarðanir sem eðli máls samkvæmt geta verið erfiðar, sviptingar eru miklar, verkefni geta færst til eða verið tekin af dagskrá án mikils fyrirvara og breytingar á skipuritum eru tíðar. Starfsfólk ráðuneyta hefur ekki verkfallsrétt og ber ríka hlýðni- og þagnarskyldu.
Starfsfólk getur fengið á sig mikla gagnrýni fyrir störf sín. Vinnuálag getur orðið mikið og oft er þrýstingur á að félagsfólk gefi afslátt af kjarasamningsbundnum réttindum. Samstaða starfsfólks er gríðarlega mikilvæg þegar standa á vörð um réttindi félagsfólks, auka hag þess og sækja fram. FHSS er í eigu félaga og vettvangur sértækrar hagsmunabaráttu þeirra. Aukin stéttvitund og samstaða er mikilvægari nú en hún hefur verið um langt skeið.
FHSS hefur leitast eftir auknu samstarfi við líka hópa og rekur þjónustuskrifstofu með Stéttarfélagi lögfræðinga en á milli þessara félaga eru margvísleg samlegðaráhrif. Þá hefur Félag starfsmanna Alþingis og Starfsmannafélag Ríkisendurskoðunar gert samning við þjónustuskrifstofuna um aukið samstarf og þjónustu við sitt félagsfólk. Félagsfólk getur hvenær sem er leitað til félagsins með spurningar eða álitaefni um kjör og réttindi.
FHSS er hluti af BHM og tekur félagið þátt í hagsmunabaráttu á þeim vettvangi. Félagið hefur einnig verið virkt í samvinnu við önnur háskólafélög utan BHM. Þá hefur félagsfólk jafnframt aðgang að orlofskostum BHM og margvíslegum styrkjum úr sjóðum okkar sem reknir eru í samstarfi við önnur félög innan BHM. Eru félagar hvattir til þess að nýta þá sjóði.
Hrafnkell Tumi Kolbeinsson
Formaður FHSS
