Ákall um kjark
grein frá BHM
Staðan í kjaraviðræðum og lítill skilningur á stöðu háskólamenntaðra á vinnumarkaði veldur áhyggjum. Ekki einungis gagnvart einstaklingum sem hafa þurft að þola umtalsverða kjararýrnun heldur er framtíð og menntunarstig þjóðarinnar í húfi. – Það er kjarni málsins.
Þegar þetta er skrifað eru liðnir tæpir átta mánuðir frá því að skrifað var undir langtímasamninga á almennum markaði við nokkur stærstu stéttarfélög landsins. Í framhaldi af þeim samningum hefur stefna viðsemjenda okkar félaga verið afdráttarlaus; það sem um var samið í byrjun mars er það sem er í boði fyrir aðra, ekkert meira. Fyrir félög háskólamenntaðra þýðir það aðeins eitt; áframhaldandi kjararýrnun. Tölurnar tala sínu máli og þær eru sláandi. Frá aldamótum til ársins 2022 jókst kaupmáttur meðal-ráðstöfunartekna þeirra sem eru með grunnmenntun um 35% en engin kaupmáttaraukning, og í raun 1% samdráttur, varð á sama tímabili hjá fólki með meistaragráðu.
Skammarleg staðreynd
Enn og aftur sjáum við okkur knúnar til að minna á hver staða háskólamenntaðra er hér á landi. Launamunur háskólamenntaðra og ófaglærðra er einn sá minnsti í Evrópu. Við það geta háskólamenntaðar stéttir ekki unað öllu lengur. Fjárhagslegur hvati til að leggja á sig langt sérfræðinám með tilheyrandi skuldsetningu og seinkun á lífsframvindu og atvinnuþátttöku er orðinn svo lítill að allt samfélagið líður fyrir það. Nægir að nefna viðvarandi skort á háskólamenntuðu fólki í starfsstéttir á vettvangi heilbrigðis-, velferðar- og menntamála auk víðtæks skorts á tæknimenntuðum sérfræðingum í mörgum atvinnugreinum.
Hver mun þora?
Að okkar mati blasir það við að molnað hefur undan grundvallarstoðum samfélagsins vegna tregðu launagreiðenda við að meta sérfræðiþekkingu til launa. Það er okkur hulin ráðgáta hvernig okkar litla, en ríka þjóð, hefur ratað í þær ógöngur sem nú blasa við. Það þarf kjark og ábyrgðarkennd ráðamanna og forsvarsmanna atvinnulífsins til að horfast í augu við þessar staðreyndir og viðurkenna á hversu varhugaverðri leið við erum. Við veltum því fyrir okkur hvort ætlunin sé að takast á við þær áskoranir sem við blasa eða hvort stefnan sé að hundsa þá afleitu stöðu sem háskólamenntað fólk er í?
30 þúsund atkvæði
Við, sem erum í forsvari fyrir um þrjátíu þúsund háskólamenntaða einstaklinga í 27 stéttarfélögum, hvetjum þau sem nú gefa kost á sér til að leiða stjórn landsmálanna til að hugleiða það sem okkar stéttir hafa fram að færa til samfélagsins.
Í aðdraganda Alþingiskosninga tökum við saman höndum og óskum eftir heiðarlegu samtali við þá stjórnmálaflokka sem bjóða fram til þings. Hvaða stjórnmálaflokkar treysta sér til að sýna þann kjark og ábyrgðartilfinningu, og ekki síst metnað, sem þörf er á til að leiðrétta kjör háskólamenntaðra stétta á kjörtímabilinu sem í hönd fer? Þeim skilaboðum munum við koma áleiðis til félagsfólks okkar og hvetja það til að mæta í kjörklefann með svör flokkanna og frambjóðenda í huga.
Guðbjörg Pálsdóttir, formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga
Kolbrún Halldórsdóttir, formaður BHM-Bandalags háskólamanna
Steinunn Þórðardóttir, formaður Læknafélags Íslands
Svana Helen Björnsdóttir, formaður Verkfræðingafélags Íslands