Aðalfundur FHSS 2026
Aðalfundur FHSS var haldinn þann 9. apríl sl. þar sem m.a. var farið yfir starfsemi félagsins á nýliðnu starfsári.
Hrafnkell Tumi Kolbeinsson hefur tekið við embætti formanns. Forveri hans, Steinar Örn Steinarsson, lét af störfum eftir fjögur ár í formennsku og eftir að hafa setið í stjórn félagsins frá árinu 2028.
Anna Jónsdóttir, Bjarki Pjetursson og Brynja Stephanie Swan voru sjálfkjörin í stjórn félagsins. Donata Honkwowicz og Ingveldur Lárusdóttir voru jafnframt sjálfkjörnar sem fyrsti og annar varamaður.
Stjórn Félags háskólamenntaðra starfsmanna stjórnarráðsins skipa Hrafnkell Tumi Kolbeinsson, Brynja Stephanie Swan, Guðmundur Þórir Steinþórsson, Bjarki Pjetursson og Anna Jónsdóttir, ásamt varamönnunum Donata Honkwowicz og Ingveldi Lárusdóttur.
Lagabreytingar voru afgreiddar á fundinum og má lesa lög félagsins í heild sinni hér:
Fundurinn var vel sóttur og er fundargerð ásamt ársskýslu félagsins aðgengileg á heimasíðu félagsins. Stjórn félagsins þakkar félagsfólki fyrir mætinguna og hvetur félagsfólk til að hafa samband við félagið við hvert tilefni.
