Beint í efni

Aðalfundur FHSS 2025

Dagskrá aðalfundar og fylgiskjöl

Aðalfundarboð 2025

Aðalfundur Félags háskólamenntaðra starfsmanna Stjórnarráðsins (FHSS) verður haldinn 28. apríl n.k. frá kl. 11:30 - 13:30 í Borgartúni 6 á 4. hæð.

Dagskrá fundar

1. Kosning fundarstjóra og fundarritara.

2. Formaður flytur skýrslu stjórnar um félagsstarfið á liðnu starfsári.

3. Endurskoðaðir ársreikningar félagsins lagðir fram til samþykktar.

4. Ákvörðun um félagsgjöld.

5. Lagabreytingar.

6. Kosning formanns.

7. Kosning stjórnar.

8. Kosning fyrsta og annars varamanns

9. Önnur mál.

Fundargögn

Inn á vefsíðu félagsins má finna þau fundargögn sem liggja fyrir fundinum. Athugið að öll fundargögn munu birtast á vefsíðu félagsins í síðasta lagi einum sólarhring áður en fundur hefst. Tillögur stjórnar til lagabreytinga verða jafnframt sendar félagsfólki a.m.k. viku fyrir boðaðan aðalfund.

Kosning stjórnar

Á aðalfundi FHSS 2025 er ekki kosið um formann. Um framboð til stjórnar og varamanna í stjórn skal tilkynnt skriflega til stjórnar a.m.k. þremur dögum fyrir aðalfund. Berist ekki framboð í allar trúnaðarstöður í aðdraganda aðalfundar má auglýsa eftir framboðum á fundinum. Vinsamlega sendið framboð í tölvupósti á fhss@fhss.is. Á fundinum verður kosið í eftirfarandi embætti:

· Tveir aðalmenn í stjórn til tveggja ára.

· Tveir varamenn í stjórn til eins árs - kosið er um fyrsta varamann og annan varamann.

Sjá endurskoðaðan ársreikning félagsisns hér: https://fhss-www.cdn.prismic.io/fhss-www/aAAZj-vxEdbNPKI4_FHSS-%C3%81rsreikningur2024.pdf

Sjá tillögur að lagabreytingum hér: https://fhss-www.cdn.prismic.io/fhss-www/aAAZXOvxEdbNPKIw_Till%C3%B6gurstj%C3%B3rnarFHSSa%C3%B0lagabreytingum.pdf

Virðingarfyllst,

Stjórn FHSS.