Aðalfundur FHSS - 2026
Aðalfundarboð
Aðalfundarboð 2026
Aðalfundur Félags háskólamenntaðra starfsmanna Stjórnarráðsins (FHSS) verður haldinn 9. apríl n.k. Fundurinn hefst klukkan 11:30 og fer fram á Hótel Nordica.
Dagskrá fundar:
1. Kosning fundarstjóra og fundarritara.
2. Formaður flytur skýrslu stjórnar um félagsstarfið á liðnu starfsári.
3. Endurskoðaðir reikningar félagsins lagðir fram til samþykktar.
4. Ákvörðun um félagsgjöld.
5. Lagabreytingar.
6. Kosning formanns.
7. Kosning stjórnar.
8. Kosning fyrsta og annars varamanns
9. Önnur mál.
Fundargögn
Á vefsíðu félagsins má finna þau fundargögn sem liggja fyrir fundinum. Athugið að öll fundargögn munu birtast á vefsíðu félagsins í síðasta lagi þremur dögum fyrir fund. Tillögur stjórnar til lagabreytinga verða jafnframt kynntar félagsfólki a.m.k. viku fyrir boðaðan aðalfund.
Kosning stjórnar
Um framboð til stjórnar og varamanna í stjórn skal tilkynna skriflega til stjórnar a.m.k. þremur dögum fyrir aðalfund. Framboð til formanns skal berast skriflega til stjórnar eigi síðar en viku fyrir aðalfund. Berist ekki framboð í allar trúnaðarstöður í aðdraganda aðalfundar má auglýsa eftir framboðum á fundinum. Vinsamlega sendið framboð í tölvupósti á fhss@fhss.is. Á fundinum verður kosið í eftirfarandi embætti:
- Formaður til tveggja ára.
- Þrír aðalmenn í stjórn til tveggja ára.
- Tveir varamenn í stjórn til eins árs - kosið er um fyrsta varamann og annan varamann.
Virðingarfyllst,
stjórn FHSS.
