Beint í efni

Opnunartími yfir jól og áramót 

Opnunartími þjónustuskrifstofu félagsins tekur mið af hátíðunum  

Lokað verður á þjónustuskrifstofu félagsins á þorláksmessu, aðfangadag jóla, jóladag, annan í jólum, gamlársdag og nýársdag.

Afgreiðsla þjónustuskrifstofu félagsins í Borgartúni 6 verður lokuð á milli jóla og nýárs en opið er fyrir innhringingar í síma 595-5165 á milli kl. 09:00 til 16:00 frá miðvikudegi (27. des) til föstudags (29. des.) Við bendum félagsfólki okkar á að það getur sent okkur fyrirspurn, stofnað formlega þjónustubeiðni eða óskað eftir símtali í gegnum þar til gerð form á vefsíðu okkar. Eftir að erindi berst okkur verður haft samband við fyrsta tækifæri.

FHSS óskar félögum og landsmönnum öllum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári og þakkar samstarfið á vinnumarkaði.